Nokia Bluetooth Headset BH 216 - Rafhlaðan hlaðin

background image

Rafhlaðan hlaðin

Áður en rafhlaðan er hlaðin skaltu lesa
vandlega „Upplýsingar um rafhlöðu og
hleðslutæki“.

Viðvörun: Aðeins skal nota
hleðslutæki sem Nokia hefur

samþykkt til notkunar með þessari
tilteknu gerð. Ef notaðar eru aðrar gerðir
gæti öll ábyrgð og samþykki fallið niður
og slíkri notkun getur fylgt hætta.

Þegar aukabúnaður er tekinn úr
sambandi skal taka í klóna, ekki leiðsluna.

1. Stingdu hleðslutækinu í samband

við innstungu.

2. Tengdu snúru hleðslutækisins við

tengið. Rauða stöðuljósið logar
meðan á hleðslu stendur. Það gæti
tekið allt að 1 klukkutíma og
15 mínútur að hlaða rafhlöðuna
til fulls.

3. Græna stöðuljósið logar þegar

rafhlaðan er fullhlaðin.
Hleðslutækið er fyrst tekið úr
sambandi við höfuðtólið, síðan
úr rafmagnsinnstungunni.

background image

ÍSLENSKA

Fullhlaðin rafhlaða endist í allt að
6 klukkustundir í tali eða allt að
160 klukkustundir í biðstöðu.

Staða rafhlöðunnar þegar höfuðtólið
er ekki tengt við hleðslutæki er
könnuð með því að ýta á rofann
á meðan kveikt er á höfuðtólinu.
Ef stöðuljósið er grænt er rafhlaðan
nægilega hlaðin. Ef ljósið er
appelsínugult gæti þurft að hlaða
rafhlöðuna bráðlega. Ef ljósið er rautt
skaltu hlaða rafhlöðuna.

Þegar rafhlöðuhleðslan er lítil gefur
höfuðtólið frá sér tón á 5 mínútna
fresti og rauða stöðuljósið blikkar.