
Þráðlaus Bluetooth-tækni
Þráðlaus Bluetooth-tækni gerir þér
kleift að tengja saman samhæf tæki
án þess að nota snúrur. Höfuðtólið
þarf ekki að vera í beinni sjónlínu við
hitt tækið, en tækin verða að vera
í innan við 10 metra (33 feta) fjarlægð
hvort frá öðru. Tengingar geta orðið
fyrir truflunum frá hindrunum, líkt og
veggjum eða öðrum raftækjum.
Höfuðtólið er samhæft við Bluetooth
Specification 2,1 + EDR og styður
eftirfarandi snið: Headset Profile 1.1
og Hands-Free Profile (HFP) 1.5. Leita
skal upplýsinga hjá framleiðendum
annarra tækja um samhæfi þeirra við
þetta tæki.

ÍSLENSKA