Nokia Bluetooth Headset BH 216 - Símtöl

background image

Símtöl

Hringt er úr tækinu á venjulegan hátt
þegar höfuðtólið er tengt við það.

Til að hringja aftur í númerið sem
síðast var hringt í (ef tækið styður
þennan möguleika með höfuðtólinu)
er ýtt tvisvar á svartakkann þegar
ekkert símtal er í gangi.

Til að gera raddhringingu virka
(ef tækið styður þennan möguleika
með höfuðtólinu) er svartakkanum

haldið inni í u.þ.b. 2 sekúndur þegar
ekkert símtal er í gangi. Farðu eftir
leiðbeiningunum í notendahandbók
tækisins.

Ýtt er á svartakkann til að svara
símtali eða leggja á. Símtali er hafnað
með því að ýta tvisvar sinnum
á þennan takka.

Hljóðstyrknum er breytt með því að
ýta hljóðstyrkstakkanum upp eða
niður.

Til að draga niður í eða hækka
í hljóðnemanum skaltu styðja
á miðjan hljóðstyrkstakkann. Þegar
dregið er niður í hljónemanum blikkar
græna stöðuljósið tvisvar á u.þ.b.
5 sekúndna fresti.

Til að flytja símtal úr höfuðtólinu yfir
í samhæft tæki er svartakkanum
haldið niðri í u.þ.b. 2 sekúndur eða
slökkt á höfuðtólinu. Til að flytja
símtalið aftur í höfuðtólið er

background image

ÍSLENSKA

svartakkanum haldið niðri í u.þ.b.
2 sekúndur eða kveikt á höfuðtólinu.